Spánn - Torrevieja 2006

Torrevieja
myndasíður





Síður í minni umsjá

Spánarferð 16.-30.júlí 2006

Skelltum okkur öll fjölskyldan (+ tengdaforeldrar mínir) til Torrevieja á Spáni og dvöldum þar seinni hluta júlímánaðar. Þar leigðum við hús af Íslendingum sem eru með fullt af húsum þarna á sínum vegum og heitir fyrirtæki þeirra Lindhouses. Húsið var staðsett í úthverfi Torrevieja og heitir þetta úthverfi ´Los Altos´ og var húsið staðsett á La Pinada og var númer 13. Reyndar áttum við að fá hús sem var í göngufæri við strönd, 10-15 mínútna gangur, en einhverra hluta vegna brást það á síðustu stundu. Þetta hús sem við fengum var hins vegar langt frá ströndinni, af þeim sökum fórum við ekki nema þrisvar sinnum á ströndina. Húsið var ekki með loftælingu svo viftur hússins þurftu laglega að vinna fyrir kaupinu sínu. Einnig var sundlaug, sem tilheyrir götunni, gríðarlega mikið notuð og bjargaði oft lífi okkar í hitanum. Aðeins fyrstu nóttina var gist á efri hæðinni, en sökum hitans þar uppi þá gistu allir á neðri hæðinni eftir það.

Við höfðum engan bílaleigubíl til að byrja með, en þau Halldór og Unnur hjá Lindhouses (Smellið hér til að komast á bráðabirgðasíðu þeirra því aðalsíða þeirra er í vinnslu), redduðu 8 manna bíl með snarheitum fyrir okkur og höfðum við hann í viku. Þetta var heljar mikið tryllitæki af gerðinni Fiat Scudo. Þegar honum var skilað höfðu verið eknir um 600 kílómetrar og var tankurinn aðeins hálfnaður, sparneytin kerra hér á ferð greinilega.

- -

Við notuðum bílinn til að fara í dýragarð nálægt Elche og Santa Pola. Þetta er Safarígarður sem kallaður er RioSafari Elche (www.riosafari.com) og er þetta ekki nema 30-40 mínútna akstur frá Torrevieja. Einnig fórum við á honum 3 ferðir á ströndina og lengsta ferðin okkar var svo í Terra Mitica (www.terramiticapark.es), sem er risastór skemmtigarður hjá Benidorm, ca.90-100 mínútna akstur frá Torrevieja.

Nokkrum sinnum var líka kíkt í Habaneras sem er stór kringla í Torrevieja, sem og í Carrefour (sem er gríðarstór Rúmfatalagersbúð - allt til þar!!). Einnig fórum við tvisvar á markaði niðri í bæ og næst síðasta daginn kíkti ég með Arnþóri og Marinó í vatnsleikjagarðinn í Torrevieja, en hann heitir Aquopolis (www.aquopolis.es). Það er alveg ágætis vatnsleikjagarður rétt við Habaneras.

Þrátt fyrir mikinn hita og svita var þetta alveg frábær og eftirminnileg ferð, næst förum við samt örugglega á hótel við ströndina....

Kíkið endilega á myndasíðurnar úr ferðinni, sem og myndbönd henni tengd....

Bestu kveðjur, Bjarki.