![]() | ||
![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
Fæddist á Akranesi og ólst þar upp. Var eitthvað í leikskóla, að mestu á Vallarseli. Fór síðan í Brekkubæjarskóla, þaðan í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi (tók Náttúrufræðibraut). Eftir námið þar tók ég árs frí frá námi og var að vinna í Einarsbúð (Verslunin Einar Ólafsson), hafði reyndar unnið þar meira og minna frá því ég man eftir mér. Haustið ´95 hóf ég svo nám í meinatækni við Tækniskóla Íslands, eftir annað árið fékk ég vinnu á Sýkladeild Landspítalans yfir sumartímann og vann þar þau sumur sem ég átti eftir af skólagöngunni. Útskrifaðist með B.Sc. próf úr meinatæknadeildinni í janúar 1999. Var þá byrjaður að vinna á Sýkladeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, var þar í tvo mánuði. Þá flutti ég mig yfir á Sýkladeild Landspítalans og vann þar til loka ársins 1999. Þá hafði mér boðist spennandi starf á rannsóknastofu Sjúkrahúss Akraness, og þáði ég það og það er vinnustaður minn í dag.
Haustið 2001 kynntist ég Arndísi, sem er konan mín í dag. Hún átti tvo syni fyrir, þeir eru Arnþór Snær fæddur ´96 og Marinó Hrannar fæddur´98. Þann 29.ágúst 2002 eignuðumst við son og var hann skírður þann 1.september 2002 í kapellu Sjúkrahúss Akraness. Hlaut hann nafnið Halldór Andri og er það í höfuðið á föður mínum (sem heitir Halldór Ármann Guðmundsson) og bróður hennar Arndísar (sem hét Andri Már Guðmundsson - en hann lést í mótorhjólaslysi árið 2000). Snemma á árinu 2002 keyptum við okkur einbýlishús og fluttum þangað um mánaðamótin apríl/maí ´02. Við Arndís giftum okkur þann 24.apríl 2004 í Akraneskirkju. Að lokinni athöfn var haldin heljarmikil brúðkaupsveisla í Skessubrunni. Þann 23.september ´04 eignuðumst við gullfallega 20 marka stelpu (5085 grömm) og 57 cm að lengd. Fæðingin gekk bara nokkuð vel fyrir sig. Stúlkan var skírð þann 26.september og hlaut hún nafnið Una Þórdís. Með kveðju, Bjarki |
Upplýsingar
Fullt nafn: Guðmundur Bjarki Halldórsson Starf: Lífeindafræðingur á Sjúkrahúsi Akraness (www.sha.is) GSM: +354-8634234 Netfang: bjarkih@simnet.is Fd. og ár: 27.febrúar ´74 Maki: Arndís Halla Guðmundsdóttir (22/6 ´78) Börn: Arnþór Snær (22/10 ´96), Marinó Hrannar (27/8 ´98), Halldór Andri (29/8 ´02) og Una Þórdís (23/9 ´04) ![]() Síðast uppfært: 9/9 2006 |