Við viljum þakka þeim sem tóku þátt í því að gera þennan dag svona yndislegan og skemmtilegan. Takk kærlega fyrir okkur. Kveðja, Arndís og Bjarki P.s. allir að skrifa í gestabókina hér fyrir neðan !!! ![]() Skoða Gestabók Skrifa í Gestabók
|
Brúðkaup Arndísar og Bjarka
|
|
Brúðkaupsdagur rann upp, bjartur og fagur. Ekki var það veðrinu að þakka, heldur því að nú skyldum við verða eitt, þ.e. ég og Arndís. Fyrsta stefnumót okkar var þann 12.ágúst 2001 og nákvæmlega 4 mánuðum síðar trúlofuðum við okkur (þ.e. þann 12. desember 2001). Það var í rauninni Sverrir bróðir Arndísar sem kom hjólinu af stað er hann stoppaði mig fyrir utan Sjúkrahúsið og spurði mig hvort systir hans mætti hringja í mig. Í dag erum við Sverri afar þakklát fyrir að ganga í málið, því allt frá fyrsta stefnumóti hefur ríkt fullvissa um að við ættum samleið. Á fyrsta stefnumóti okkar horfðum við saman á myndina "Cast Away" með Tom Hanks í blokkaríbúðinni minni á Vallarbraut 11. Samband okkar þroskaðist mjög hratt og örugglega og strax fékk ég þá fullvissu að Arndís væri konan sem ég leitaði að. Oft er sagt að leiðin að hjarta mannsins liggi í gegnum magann. Arndís var fljót að finna þá leið, enda besti kokkur og bakari sem ég hef á ævinni hitt. Arndís flutti fljótlega með drengina sína tvo, Arnþór Snæ og Marinó Hrannar, til mín í blokkina á Vallarbrautinni. Vorið 2002 ákváðum við svo að færa okkur um set og keyptum við okkur einbýlishús á Víðigrundinni. Enda veitti ekki af þar sem Arndís var kasólétt og fjölskyldan þar með að stækka. Nú er von á einum "grisling" enn í lok september 2004. Það var því ekki eftir neinu að bíða og ákváðum við bara að drífa í því að gifta okkur. Séra Eðvarð Ingólfsson gifti okkur svo í Akraneskirkju og hófst athöfnin klukkan 15. Fengum við Stefán Hilmarsson til að syngja þrjú lög í athöfninni og leysti hann það hlutverk frábærlega af hólmi eins og hans er von og vísa. Að athöfn og myndatöku lokinni var haldið uppí Svínadal því brúðkaupsveislan var haldin í Skessubrunni (Tungu Svínadal). Þar biðu gestirnir okkar og áttum við alveg frábæra stund með þeim. Að lokum vil ég þakka fyrir okkur og vonandi takið þið ykkur tíma í að SKOÐA MYNDASERÍURNAR og ekki gleyma að skrifa í GESTABÓKINA. Kær kveðja, Bjarki. |
Nokkrar góðar![]() ![]() ![]()
|